Ég veit nú ekki hvort allar þessar uppskriftir séu eithvað sérstaklega hollar, en þetta er allt eithvað sem ég hef gert uppúr sjálfri mér, þ.e.a.s. ekki gert eftir uppskrift. En þetta er örugglega eithvað sem margir hafa eldað svona og hinsegin í gegnum tíðina. Þetta var allavega allt mjög gott og ég endurtek þessar uppskriftir reglulega.

Bon appetit!

 

Kjúklinga-núðlur

           

Eggjanúðlur

Kjúklingabringur

Frosið wok-mix

Sýrður rjómi eða kókosmjólk

Karrý

Paprikuduft

 

Ég sýð núðlurnar eins og stendur á pakkanum. Sker svo niður kjúklingabringurnar (eða hvaða kjúkling sem ég á) í teninga eða bita eins og mér finnst passa og steiki á pönnu með olíu, krydda kjúklinginn með einhverju góðu kjúklingakryddi, ekki of mikið samt. Þegar kjúklingurinn er farin að brúnast á öllum hliðum þá bæti ég wok-mixinu útí, skiptir engu hvað á að vera mikið grænmeti miðaðvið kjúkling, en mér finnst best að hafa mikið af því. Svo tek ég sýrðan rjóma, eins mikið og ég vil hafa sósuna, og hræri karrýi og paprikudufti útí, smakka svo til. Ég læt líka oftast sterka piparsósu, bara smá, og sterkt karrý paste ef það er til. Einnig gott að láta hunang til að milda bragðið. Síðan skelli ég núðlunum á pönnuna þegar þær eru soðnar og búin að hella vatninu af þeim, og helli síðan sýrða rjómanum útí og hræri öllu saman.

 

 

Kjöt í ofni

 

Kótilettur

Frosið grænmeti

Season all

Olía

 

Ég tek þiðnaðar kótilettur og læt í ofnskúffu, krydda báðar hliðar með season all, ég nota oft líka ítalska hvítlauksblöndu, og dreifi svo úr grænmetinu á milli kótilettanna, eða ef ég gerir stóra uppskrift þá læt ég grænmetið undir kjötið. Helli í lítilli bunu ólífuolíu yfir allt, ekki of mikið bara til að fá smá auka vökva, alls ekki þannig að það þetta liggi í olíunni. Svo lem ég tvö hvílauksrif  og sker í tvennt, legg partana hér og þar með grænmetinu. Inní ofninn á grillstillingu í hálftíma og þá verður kjötið mjúkt og ilmandi og grænmetið á kafi í kryddlegi því það kemur alltaf einhver vökvi úr kjötinu.

 

Tekið til í ísskápnum

 

Brauðsneiðar

Egg

Mjólk

Salt og pipar

Skinka, bacon eða annað sem þér dettur í hug

Paprika

Laukur

Soðnar kartöflur

Ostur

 

Ég ríf brauðið niður í litla bita. Slæ saman egg, mjólk, salt og pipar og helli yfir brauðbitana og blanda saman, helli svo í botn á eldföstu móti. raða skinkusneiðunum yfir brauðið. Snöggsteiki papriku og lauk á pönnu, bara til að ná fram sæta bragðinu, og læt svo yfir skinkuna. Gott að láta annað lag af skinkunni, og raða svo soðnum kartöflum í sneiðum yfir allt saman, dreifa osti yfir og skella inní ofn þar til osturinn er bráðnaður.

 

 

Heitur hakkréttur

 

Pasta

Hakk

Rjómaostur

Krydd

 

Ég sýð pasta, steiki hakk, kryddi eins og mér finnst best, helli af pastanu og læt í botninn á eldföstu móti, dreifi litlum bitum af rjómaosti yfir pastað, helli hakkinu yfir, dreifi meiri rjómaosti þar yfir og svo loks ost yfir allt saman, skellið inní ofn þangað til osturinn er eins og mér finst bestur. Mjög gott að nota t.d. rjómaost með svörtum pipar í annað lagið, jafnvel bæði, eða hvaða rjómaost sem er.

 

 

Pastasalat

 

Pasta

Salat

Paprika

Gúrka

Ólífulolía

Ostur

Salt og pipar

 

Ég sýð pasta, helli í sigti og læt kalt vatn buna á það á meðan ég skerið niður salatið, það má nota hvaða salat sem þið viljið, ég nota oftast klettasalat. Sker paprikuna niður í bita og gúrkuna niður í teninga. Skrúfa fyrir vatnið á pastanu þegar það er orðið kalt en geymi pastað áfram í sigtinu. Sker ostinn niður í teninga og blanda saman við grænmetið, helli olíunni í skál, eins mikið og ég vil að dressingin verði, og krydda með salti og pipar, smakka til. Blanda pastanu saman við salatið og helli dressingunni yfir. Kjúklingur er mjög góður í þetta salat líka, jafnvel rækjur og annað kjöt.

 

 

 

 

Ostapastasósa

 

Pasta

Smurostur

Rjómi

Blaðlaukur

Skinka

Pipar

 

Ég sýð pasta og bræði smurost í potti, má vera papriku/sveppa/skinku/bacon ostur eða hreinn smurostur. Passa að osturinn brenni ekki. Helli rjómanum útí, það má líka vera mjólk, hræri vel. Skeri laukinn í sneiðar og skinkuna í teninga og bæti útí. Krydda eftir smekk með pipar eða hvaða kryddi sem er, smakka til og ber fram með pastanu.

 

 

Buff á brauði

 

Hakk

Laukur

Oregano

Pipar

Salt

Hveiti

Egg

Mjólk

Brauðsneiðar

Tómatpuré

Paprikuduft

Season all

Tómatsósa

 

Ég saxa laukinn smátt og hnoða honum og oregano í hakkið, bæti salti og pipar eftir smekk. Bæti við hveiti þangað til þetta er orðið meðfæranlegt og móta kringlótt buff.  Steiki á heitri pönnu og passa að steikja alveg í gegn. Slæ saman egg og mjólk og krydda með oregano, salti og pipar. Bleyti brauðsneiðar uppúr eggjahrærunni og steikið á pönnu með olíu, gott að hafa tvær pönnur eða klára buffið og steikja svo brauðið. Hef eins margar brauðsneiðar og buffin eru. Læt brauðsneiðarnar á disk og smyr með tómatpuréinu. Krydda með paprikudufti og læt svo buffið á. Krydda með season all og læt tómatsósu, kokteilsósu eða hamborgarasósu

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Flokkar