13febrúar

Dagur wh000t?

... Ég er að flytja útúr húsinu okkar!!! Djöfulsins helvítis ógeðs ógeð og viðbjóður...!
Nei ég er ekki að tala um Rögga, ég er að tala um silfurskotturnar sem eru inni á bað hjá okkur, og hafa verið síðan við fluttum inn... jeij.. aaanywhoo, við höfum líka fundið eina inní svefnherbergi :S þegar við vorum nýlega flutt inní það, en töldum þá skýringu vera rétta ða hún hefði bara fylgt buxnaskálm annarshvors okkar af baðinu... og eftir þetta horfi ég veeeeeel í kringum mig þegar ég pissa þarna inni!!

svo það sem toppaði þetta alveg var þegar ég var að koma úr sturtu rétt áðan og opnaði nærbuxnaskúffuna mína... og er þá ekki bara ein feit og sælleg að hlaupa um á nærunum mínum!!!

og BTW þessi skúffa er efsta skúffan í hárri kommóðu! já þær geta gengið upp lóðrétta fleti!

Sem betur fer er ég með tvær skúffur fyrir nærföt (þyrftu að vera fleiri) svo hin er vonandi í lagi... C: virkar ekki á ykkur segiði? ekki mig heldur, það eru eða hafa pottþétt verið pöddur þar líka! DJÖFULSINS ÓGEEEEEEEÐ!!!

Ég kem semsagt ekki aftur innfyrir hússins dyr eftir að ég finn eithvað til að fara í og get farið út.. fyrr en það er búið að eitra fyrir þessu ógeði!!!

 

Já og ástæðan fyrir bloggleysinu er ælupest og ógleði og svona.. :S og svo er ég að fara í sumarbústað á eftir svo ég byrja á æfingarblogginu aftur eftir helgi :D

Blebbiddíbless

13. febrúar 2009 klukkan 11:43
Steinunn Björg Ólafsdóttir
Sögur
1 athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Flokkar