Dagur 1
Jæja, það var ræs klukkan 8 í morgun, og það var fáránlega erfitt! Ég sakna þess þegar maður gat verið úti alla helgina og farið seint að sofa eða ekkert og mætt samt hress í skólann á mánudeginum.
Ég fór nú samt í skólann, en fór heim í hádeginu með haus- og magaverk. Svo núna er ég að koma þessari síðu í gang og ætla að reyna að blogga daglega (hvernig sem það mun ganga). Og ég ætla að láta vikuplanið mitt hérna inn og ýmsar uppskriftir og ráð sem ég mun notast við og einnig verða einhverjar myndir til að sína mun (ef hann verður einhver ;) )
Notast við hvað segiði? Ef þið hafið skoðað síðuna eithvað sjáið þið kanski hvað ég er að fara að gera. Ég ætla að fara í átak fram að afmælinu mínu og sjá hversu mikið ég breytist á þessum dögum. Ný ég fyrir tvítugt =).
Svo ef þið viljið hvetja mig, fylgjast með eða líka fara í átak þá er ykkur velkomið að fylgjast með.
Gangi mér vel :D