Úlfur, Úlfur?

Það er óþarfti að fara útí það hvað ég er að tala um, þeir sem vita hvað málið snýst um, þeir vita hvað málið snýst um. Ekki það að nokkur maður lesi þetta hvort sem er, en það léttir alltaf aðeins á manni að skrifa um svona hluti.
Málið er bara að ég er/geri svona og hinsegin og fólk lítur mig svo miklu hornauga fyrir það að fólk er farið að þekkja augntóftirnar ansi vel. Eða svo hef ég allavega heyrt! Tiltekin aðilli, sem við skulum kalla Ta, hélt langa ræðu um þetta yfir mér um helgina, semsagt sagði mér að hinum og þessum fyndist hitt og þetta, en Ta var alls ekki svoleiðis líka, Ta skildi alveg, fannst bara erfitt að útskýra alltaf fyrir hinum. Og já, það er sárt að heyra að fólk sem þú hélst að bæri einhverja virðingu fyrir þér lítur niður á þig útaf einhverju fáránlegu og getur ekki einu sinni talað um það við mig! Svo núna gerði ég þetta aftur og þá er Ta allt í einu farin að dæma mig líka, þrátt fyrir allt sem Ta sagði um helgina! Hvað segir það mér? Auðvitað að Ta var að bulla um helgina bara til að særa mig ekki eða eithvað. En það er bara svo miklu sárara að komast að svona löguðu eftir á. Fólk fattar það ekki.
Og svo til að toppa þetta allt, þá vill engin heldur viðurkenna til fulls hvernig þeim finnst þetta. Það er ekki sagt beint út ,,mér finnst þú vera að gera rangt" eða hvað sem við á, heldur er sagt ,,Nei mér finnst þú ekki endilega vera að gera rangt, bara finnst þú mættir gera aðeins betur rétt" en þau eru í rauninni öll að hugsa fyrri hlutinn.
Ég er ekki að tala um að allir eigi bara að standa upp og segja sína skoðun á öllu og öllum, það getur verið of sárt, en ef svona hlutir fara svona mikið í taugarnar á fólki þá ætti það að geta talað um þá, allavega fengið skýringu! Fólk veit oft ekki nema helminginn af sögunni hvort sem er!

Ekkert meira í bili
Takk fyrir ef einhver las þetta eða veit á annað borð af þessari síðu...
01. apríl 2009 klukkan 13:32
Steinunn Björg Ólafsdóttir
Ingibjörg Rún skrifar ...
Vóóó.. Elskan mín.
Þú mátt alveg vita það, að þú getur alveg og mátt alveg tala við mig ef að þér líður eitthvað illa.
Bara svona láta þig vita.
Mér þykir vænt um þig ;*
17. apríl 2009 klukkan 22:01

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Flokkar