Vinna vinna vinna...

Vakna kl.6

Fer á fætur

Sit og les með tebolla

Hótelið kl.7

Fólk kemur kl.7.30

Fólk fer kl.10.00

Fer heim kl. 11.30 (ca)

Borða

Slaka á?

Þrýfa

Tek ofanaf lauginni

Vaktin

Breiða yfir

Þrýfa

Hringja í Rögga

Sofa

--------------------------------------------------------------------------

Já svona er nú dagurinn hjá mér í grófum dráttum, amk fjóra daga í röð, næstu fjóra daga á eftir er ég í fríi og þá er bara hitt og þetta brallað.... Ég skrapp reyndar til Rökka á þriðjudaginn síðasta því gamli kallinn átti afmæli :) Hann var voða glaður að sjá mig, enda lét ég hann að sjálfsögðu ekkert vita og við veltumst uppí rúmmi í faðmlögum og kossaflensi um leið og hann kom heim eins og unglingar í bíómynd! Alveg hissa á að bakið á honum hafi ekki gefið sig ;) Hehehe ég segi svona :P

Svo fórum við á T.G.I. Fridays með Adda og Binna og borðuðum AAAAAALLT OF MIKIÐ og Röggi fékk sér svo stóra Jack's rifjasteik að við héldum að hann þyrfti að taka hana með sér í bíóið til að klára hana einhverntíman :P En vá kjötið bráðnaði uppí manni! Svo fórum við á Indíana Jones sem var fín, bara í lengri kantinum og byrjaði ekki fyrr en 10.40... svo við vorum komin SEINT heim.

Mjámm, Röggi fer í sveinsprófið á morgun og kemur svo vonandi til mííín :) Ég sakna hans alltof mikið! Gangi þér vel elskan :)

Ibbulingur var að útskrifast fyrir viku, og nema hvað, hún dúxaði að sjálfsögðu, 7 verðlaun hvorki meira né minna! Ég er að springa af stolti að eiga svona gáfaðar vinkonUR því Halla fékk líka 4 verðlaun minnir mig, ferðaverðlaun og peningaverðlaun og ég veit ekki hvað og hvað :) Ætli ég dúxi líka....?? hahahahahaha!

En já, núna er ég búin að koma ýmsu frá mér, vill líka benda á nýja síðu sem ætti að koma öllum í gott skap og góð sköp og ég veit ekki hvað og hvað ;)

www.eystein.bloggar.is

Annars bið ég bara að heilsa ;)
Bæjó
06. júní 2008 klukkan 21:07
Steinunn Björg Ólafsdóttir
Sigrún sys skrifar ...
Hæ sæta - en skemmtilegir dagar sem þú átt ;) Hlakka til að koma heim til landsins og vera í nágrenninu við ykkur dúllurnar! Hvernig er það með tónlistaskólann í Keflavík... er einhver deild fyrir Guðjón Steins aldur? Veistu það?
Verðum í bandi - bestu kveðjur til Rögga sæta.
Knús, Sigrún og co. (alveg rétt að verða búin með verkefnið mitt - jeij!)
14. júní 2008 klukkan 17:12
Eydís SigurđardóttirSćl kella!;) Wazzz uuup?:D
19. júní 2008 klukkan 18:17

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Flokkar