Habblaha!

Já lesendur mínir kæru (þótt fáir séu), í dag er ég að blogga á MacBook tölvu í fyrsta sinn held ég! Merkilegt? nei það finnst mér ekki heldur.. ég bara veit ekki hvað ég á að segja... Ég er bara í skólanum á fullu þessa dagana og kvíði mikið fyrir að þurfa að skila öllum þessum bévítans verkefnum sem hafa hlaðist upp hjá mér í þessum bjánalegu veikindum! phiff! En ég fer svo bara í eitt próf 5 mai og þá er ég BÚIN! þá er bara að pakka niður og þrífa, HÁTT og lágt þessa ógeðslegu íbúð okkar sem ég er hissa á að standi ennþá uppi, hún er orðin svo morkin og fúin og bara eeeejúúúú! eða hvernig sem maður skrifar það :P EW? Og svo er það vinnan! :D ég get ekki beðið eftir að fara heim og vinna hjá Dóru og mömmu og pabba og Ragga kemur heim að vinna! VÍJJ! jibjab...

Sumardagurinn fyrsti á morgun? ætli veturinn verði ekki drukkin í burt í kvöld... :P Við Röggi og eydís ætlum að grilla og hafa það huggó og súpa rauðvín og svona :) Jeij ég hlakka geggjað til, en núna er að fara að koma tími og bútasaumurinn kallar!!! .... úff....

bæbæ
23. apríl 2008 klukkan 08:13
Steinunn Björg Ólafsdóttir
Eydís skrifar ...
ÞAÐ VAR FJÖR!:)
HLAKKA TIL AÐ ENDURTAKA ÞETTA AFTUR;)
26. apríl 2008 klukkan 19:05

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Flokkar