Binni gamall í dag....

...ég ekki alveg eins gömul á morgun...

Allavega ég ákvað að halda ágætlega upp á þetta um helgina og það var svona nokkuð skrautlegt.

Föstudagurinn fór í það að hanga með Guðrúnu Maríu og Steina og rúnta út um allt og syngja og svona. Og svo fór ég í kjötsúpu til Siggu frænku og þar voru Sigrún, Skúli og krakkarnir og Guðni, Magga og krakkarnir, mikið fjör.
Loks þegar ég var búin að knúsa essin þrjú og géið bless og góða nótt fórum við Röggi til Höllu og Ibba var þar og svo náði Röggi í Inga og það var geggjað gaman hjá okkur, stelpurnar að gera fullt af svona kokteilum með hinu og þessu í.
Svo þegar við vorum búin að spila soldið og spjalla fóru stelpurnar niðrí miðbæ og ég, Röggi og Ingi fórum á klúbbin sem var dauðari en allt! Og enduðum kvöldið svo á subway þar sem ég pantaði gómsætan pizzabát ala Steina handa Ingimundi sem vissi ekkert hvað hann vildi og ég vona að honum hafi fundist hann góður því við hentum honum bara heim og fórum svo að sofa.

Laugardagurinn byrjaði hinsvegar bara rólega og ég fór í Keflavík með Rögga sem þurfti að vinna (veit þið eigið bágt með að trúa því, en það er satt) og var bara að hanga þar í tölvunni og svo ákváðum við Röggi að skella okkur á Selfoss til Bjöggu og Kára.
Við byrjuðum strax að drekka og fórum í drykkjuleiki og svona og svo þegar strákarnir voru komnir á kaf í einhvern póker og við stelpurnar nenntum ekki að sitja bara og gera ekkert sendi ég Jobba sms og hann náði í okkur og við fórum á rúntinn í laaangan tíma.
Svo einhverntíman um miðja nótt ákváðu Bjögga, Kári og Röggi að fara heim í trekant (eða Bjögga, Kári og íþróttaálfurinn kanski frekar) en ég og Jobbi spjölluðum meira og meira og svo náði hann í pabba hennar Röggu og ég ákvað að skella mér bara með útá flugvöll að ná í Röggu og mömmu hennar sem voru að koma frá Bandaríkjunum.
Jahérna hér.. ég var semsagt læst úti af vistinni líka svo ég fór bara heim með Jobba og Röggu á meðan þau fóru í gegnum töskurnar til að flokka dótið hennar og mömmu hennar.
Loksins svaraði Röggi í símann og ég gat farið að sofa um hálf 10 í morgun. Vaknaði svo aftur um 12, ennþá vel íðí, enda kláraði ég næstum því 750 ml af Jägermeister á tæpum 12 tímum, en svo þegar þynnkan helltist yfir mig þá hefði ég alveg viljað falla í dásvefn þangað til áfengið væri farið úr mér! Jesus hvað ég var þunn! Og kvefuð, og þreytt.
Við Röggi héngum bara á Selfossi þangað til um miðjan dag og skelltum okkur þá í Keflavík. Þynnkan er að líða úr mér vonandi, get allavega hreyft mig örlítið hraðar en í dag og mér verður ekki óglatt við það að hreyfa hausinn. Enda ælta ég mér að vera þurr þangað til í apríl þegar við förum á Vog.

Annars hef ég ekkert meira að segja, ætla að reyna gera eithvað gáfulegt núna.

Hej hej!

30. mars 2008 klukkan 22:28
Steinunn Björg Ólafsdóttir
Sigrún sys skrifar ...
Hæ sæta litla systir!
Bara svona til að minna á það - ég er aldrei þunn - enda drekk ég aldrei fulla flösku af Jagermester ;) hehe

Annars bara að senda knús og góða skemmtun á Vogi!
Knús og sakn
Sigrún sys og allur flokkurinn
09. apríl 2008 klukkan 11:38

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Flokkar