Skakki turninn??
Ég var að lesa nýja tímaritið hans Illuga, Skakka turninn, og ég varð, kanski ekki beint fyrir vonbrigðum, en ég varð allavega frekar hissa því mér fannst eiginlega eins og það hefði eithvað klúðrast hjá þeim, eins og þeir hefðu verið á síðasta séns með útgáfuna eða ekki farið nógu vel yfir það eða eithvað því það voru nokkrar villur í blaðinu sem maður er ekki beint vanur að sjá í öðrum blöðum.Ég er ein af þessum manneskjum sem tek eftir því hvort einhver skrifaði 'i' í staðin fyrir 'y' eða gerir einhverjar smávægilegar villur í textum sem aðrið taka ekki eftir eða pæla ekki í. Ekki það að það fari eithvað fyrir brjóstið á mér, ég geri sjálf svona villur, ég bara tek eftir þeim, og þá sérstaklega ef fólk ruglar saman orðum eða stöfum sem getur breytt meiningunni talsvert. Einnig ef fólk orðar hlutina skringilega.
Ég tók eftir óvenju mörgum svona atriðum í þessu blaði, hvort það séu allt villur skal ég ekki dæma um, en
á einum stað las ég um að feit lík, ef maður getur sagt sem svo, eru fljótari að hverfa en þau grönnu vegna betri lífsskilyrða fyrir skordýrin, og þessvegna mætti segja að þar væri sko ,,lík í tuskunum". Ég hefði nú haldið að þar ætti að standa ,,líf í tuskunum" eins og orðatiltækið er, þar sem ég hélt að það hefði núþegar komið fram að manneskjan var dauð.
Það eru fleirri svipaðar "villur" í blaðinu, mæli með að þið kíkjið á það, líka bara til að lesa greinarnar, þær eru alveg ágætlega skemmtilegar og áhugaverðar á sinn hátt.
Annars aðeins að öðru, veit einhver hvað það þýðir að dreyma Cherios? Kom mikið fyrir í mörgum draumum í nótt hjá mér.. Endilega ef þið hafið einhverja hugmynd :)
14. mars 2008 klukkan 15:26
Steinunn Björg Ólafsdóttir
Steinunn Björg Ólafsdóttir
Cherios draumar...kannski áttu eftir að verða kleinuhringjabóndi ;) hahahaha
jæja, ætla að fara að spjalla við þig :D hihi
Adios
Dóra