Dagur wh000t?
Veikindi og pestar plaga menn alltaf þegar menn ætla að verða duglegir! :(smá blogg til að útskýra skort á bloggi og til að fá samúð því að....... Nánar
Dagur 1
Fyrsti dagur átaksins. Byrjar ekki æðislega, en maður gerir gott úr því er þaggi? Alltaf að halda brosinu á smettin og sólinni í sálinni ;)... NánarVinna vinna vinna...
Vakna kl.6Fer á fætur
Sit og les með tebolla
Hótelið kl.7
Fólk kemur kl.7.30
Fólk fer kl.10.00
Fer heim kl. 11.30 (ca)
Borða
Slaka á?
Þrýfa
Tek ofanaf lauginni
Vaktin
Breiða yfir
Þrýfa
Hringja í Rögga
Sofa
--------------------------------------------------------------------------
Já svona er nú dagurinn hjá mér í grófum dráttum, amk fjóra daga í röð, næstu fjóra daga á eftir er ég í fríi og þá er bara hitt og þetta brallað.... Ég skrapp reyndar til Rökka á þriðjudaginn síðasta því gamli kallinn átti afmæli :) Hann var voða glaður að sjá mig, enda lét ég hann að sjálfsögðu ekkert vita og við veltumst uppí rúmmi í faðmlögum og kossaflensi um leið og hann kom heim eins og unglingar í bíómynd! Alveg hissa á að bakið á honum hafi ekki gefið sig ;) Hehehe ég segi svona :P
Svo fórum við á T.G.I. Fridays með Adda og Binna og borðuðum AAAAAALLT OF MIKIÐ og Röggi fékk sér svo stóra Jack's rifjasteik að við héldum að hann þyrfti að taka hana með sér í bíóið til að klára hana einhverntíman :P En vá kjötið bráðnaði uppí manni! Svo fórum við á Indíana Jones sem var fín, bara í lengri kantinum og byrjaði ekki fyrr en 10.40... svo við vorum komin SEINT heim.
Mjámm, Röggi fer í sveinsprófið á morgun og kemur svo vonandi til mííín :) Ég sakna hans alltof mikið! Gangi þér vel elskan :)
Ibbulingur var að útskrifast fyrir viku, og nema hvað, hún dúxaði að sjálfsögðu, 7 verðlaun hvorki meira né minna! Ég er að springa af stolti að eiga svona gáfaðar vinkonUR því Halla fékk líka 4 verðlaun minnir mig, ferðaverðlaun og peningaverðlaun og ég veit ekki hvað og hvað :) Ætli ég dúxi líka....?? hahahahahaha!
En já, núna er ég búin að koma ýmsu frá mér, vill líka benda á nýja síðu sem ætti að koma öllum í gott skap og góð sköp og ég veit ekki hvað og hvað ;)
www.eystein.bloggar.is
Annars bið ég bara að heilsa ;)
Bæjó
Ekki ríða kisa!!
meow! you discust me so discustingly og svo fullt af discusting discusions will be discust by discusting people! og svo frat og frat og hlátur og mmmmkyssmmmkyssmmkyss! ég ætla aldrei að kyssa þig aftur, Aldrei! og svo kyssast þau.. djöfulsins lygari er hún! með hár af mér á eyranu á þér! híhíhíhíhíh omg þetta fólkég er bara alveg gúgúgaga og að drekka hvítvín heima hjá Eydísi, kemur á óvart, erum einmitt á leiðinni á paddy's aftur til að kynnast fleirri útlendingu, takmarkið er að þekkja einhvern í hverju landi á norðurlöndunum svo við getum gist hjá fólki útum allt! hehe segi svona, við kynntumst allavega 2 finnum á miðvikudaginn og lærðum (eða allavega ég, eydís átti í aðeins meiri erfiðleikum með það) að segja minun nimi on Steina og Kippis! sem þýðir ég heiti steina og kippis er skál! jeijj!
en já, þetta þarna fyrir ofan er tjáning þríhjólsins og ég á einkarétt á því og það verður frægur gjörningur þegar ég næ loksins að selja hægðir kindarinnar og verð frægur listamaður!....
eða eithvað.. en bara svona láta vita að ég er enn á lífi, gangi ykkur vel í prófunum, ég vona að mér gangi vel, við sjáumst svo bara þegar við sjáumst!
ég er að laufgast! ;)
bæbæ
Habblaha!
Já lesendur mínir kæru (þótt fáir séu), í dag er ég að blogga á MacBook tölvu í fyrsta sinn held ég! Merkilegt? nei það finnst mér ekki heldur.. ég bara veit ekki hvað ég á að segja... Ég er bara í skólanum á fullu þessa dagana og kvíði mikið fyrir að þurfa að skila öllum þessum bévítans verkefnum sem hafa hlaðist upp hjá mér í þessum bjánalegu veikindum! phiff! En ég fer svo bara í eitt próf 5 mai og þá er ég BÚIN! þá er bara að pakka niður og þrífa, HÁTT og lágt þessa ógeðslegu íbúð okkar sem ég er hissa á að standi ennþá uppi, hún er orðin svo morkin og fúin og bara eeeejúúúú! eða hvernig sem maður skrifar það :P EW? Og svo er það vinnan! :D ég get ekki beðið eftir að fara heim og vinna hjá Dóru og mömmu og pabba og Ragga kemur heim að vinna! VÍJJ! jibjab...Sumardagurinn fyrsti á morgun? ætli veturinn verði ekki drukkin í burt í kvöld... :P Við Röggi og eydís ætlum að grilla og hafa það huggó og súpa rauðvín og svona :) Jeij ég hlakka geggjað til, en núna er að fara að koma tími og bútasaumurinn kallar!!! .... úff....
bæbæ
Binni gamall í dag....
...ég ekki alveg eins gömul á morgun...
Allavega ég ákvað að halda ágætlega upp á þetta um helgina og það var svona nokkuð skrautlegt.
Föstudagurinn fór í það að hanga með Guðrúnu Maríu og Steina og rúnta út um allt og syngja og svona. Og svo fór ég í kjötsúpu til Siggu frænku og þar voru Sigrún, Skúli og krakkarnir og Guðni, Magga og krakkarnir, mikið fjör.
Loks þegar ég var búin að knúsa essin þrjú og géið bless og góða nótt fórum við Röggi til Höllu og Ibba var þar og svo náði Röggi í Inga og það var geggjað gaman hjá okkur, stelpurnar að gera fullt af svona kokteilum með hinu og þessu í.
Svo þegar við vorum búin að spila soldið og spjalla fóru stelpurnar niðrí miðbæ og ég, Röggi og Ingi fórum á klúbbin sem var dauðari en allt! Og enduðum kvöldið svo á subway þar sem ég pantaði gómsætan pizzabát ala Steina handa Ingimundi sem vissi ekkert hvað hann vildi og ég vona að honum hafi fundist hann góður því við hentum honum bara heim og fórum svo að sofa.
Laugardagurinn byrjaði hinsvegar bara rólega og ég fór í Keflavík með Rögga sem þurfti að vinna (veit þið eigið bágt með að trúa því, en það er satt) og var bara að hanga þar í tölvunni og svo ákváðum við Röggi að skella okkur á Selfoss til Bjöggu og Kára.
Við byrjuðum strax að drekka og fórum í drykkjuleiki og svona og svo þegar strákarnir voru komnir á kaf í einhvern póker og við stelpurnar nenntum ekki að sitja bara og gera ekkert sendi ég Jobba sms og hann náði í okkur og við fórum á rúntinn í laaangan tíma.
Svo einhverntíman um miðja nótt ákváðu Bjögga, Kári og Röggi að fara heim í trekant (eða Bjögga, Kári og íþróttaálfurinn kanski frekar) en ég og Jobbi spjölluðum meira og meira og svo náði hann í pabba hennar Röggu og ég ákvað að skella mér bara með útá flugvöll að ná í Röggu og mömmu hennar sem voru að koma frá Bandaríkjunum.
Jahérna hér.. ég var semsagt læst úti af vistinni líka svo ég fór bara heim með Jobba og Röggu á meðan þau fóru í gegnum töskurnar til að flokka dótið hennar og mömmu hennar.
Loksins svaraði Röggi í símann og ég gat farið að sofa um hálf 10 í morgun. Vaknaði svo aftur um 12, ennþá vel íðí, enda kláraði ég næstum því 750 ml af Jägermeister á tæpum 12 tímum, en svo þegar þynnkan helltist yfir mig þá hefði ég alveg viljað falla í dásvefn þangað til áfengið væri farið úr mér! Jesus hvað ég var þunn! Og kvefuð, og þreytt.
Við Röggi héngum bara á Selfossi þangað til um miðjan dag og skelltum okkur þá í Keflavík. Þynnkan er að líða úr mér vonandi, get allavega hreyft mig örlítið hraðar en í dag og mér verður ekki óglatt við það að hreyfa hausinn. Enda ælta ég mér að vera þurr þangað til í apríl þegar við förum á Vog.
Annars hef ég ekkert meira að segja, ætla að reyna gera eithvað gáfulegt núna.
Hej hej!
Skakki turninn??
Ég var að lesa nýja tímaritið hans Illuga, Skakka turninn, og ég varð, kanski ekki beint fyrir vonbrigðum, en ég varð allavega frekar hissa því mér fannst eiginlega eins og það hefði eithvað klúðrast hjá þeim, eins og þeir hefðu verið á síðasta séns með útgáfuna eða ekki farið nógu vel yfir það eða eithvað því það voru nokkrar villur í blaðinu sem maður er ekki beint vanur að sjá í öðrum blöðum.Ég er ein af þessum manneskjum sem tek eftir því hvort einhver skrifaði 'i' í staðin fyrir 'y' eða gerir einhverjar smávægilegar villur í textum sem aðrið taka ekki eftir eða pæla ekki í. Ekki það að það fari eithvað fyrir brjóstið á mér, ég geri sjálf svona villur, ég bara tek eftir þeim, og þá sérstaklega ef fólk ruglar saman orðum eða stöfum sem getur breytt meiningunni talsvert. Einnig ef fólk orðar hlutina skringilega.
Ég tók eftir óvenju mörgum svona atriðum í þessu blaði, hvort það séu allt villur skal ég ekki dæma um, en
á einum stað las ég um að feit lík, ef maður getur sagt sem svo, eru fljótari að hverfa en þau grönnu vegna betri lífsskilyrða fyrir skordýrin, og þessvegna mætti segja að þar væri sko ,,lík í tuskunum". Ég hefði nú haldið að þar ætti að standa ,,líf í tuskunum" eins og orðatiltækið er, þar sem ég hélt að það hefði núþegar komið fram að manneskjan var dauð.
Það eru fleirri svipaðar "villur" í blaðinu, mæli með að þið kíkjið á það, líka bara til að lesa greinarnar, þær eru alveg ágætlega skemmtilegar og áhugaverðar á sinn hátt.
Annars aðeins að öðru, veit einhver hvað það þýðir að dreyma Cherios? Kom mikið fyrir í mörgum draumum í nótt hjá mér.. Endilega ef þið hafið einhverja hugmynd :)
